RIFE RESONATOR

Þáttur Kjartans Gunnars Kjartanssonar

Saga Royal Rife

Ef heilbrigðiskerfið heldur áfram að þróast, verður Royal Rife einhvern daginn viðurkenndur sem einn af mestu snillingum læknisfræðinnar fyrr og síðar. Árið 1920 bar Royal Rife kennsl á krabbameinsvírusinn með hjálp öflugustu smásjár í heimi (en hann notaði örlítið breytta útgáfu, sem hann hafði sjálfur hannað). Þá ræktaði hann vírusinn (í söltuðu svínakjöti, sem reyndist hentugasta gróðrarstían), og sprautaði honum inn í rottur (allar þær 400 sem hann hafði yfir að ráða). Seinna uppgötvaði hann svo rafsegultíðni sem, ef vírusinn var innan orkusviðs hennar, varð valdur að því að vírusinn brotnaði niður. Hann bjó til tæki sem gaf frá sér þessar bylgjur og náði með því að eyða krabbameinsvírusum inní sjúklingum sem staddir voru innan þriggja metra frá tækinu.

Árið 1934 skipaði Háskóli Suður-Kaliforníu nefnd, sem flytja átti 16 dauðvona krabbameinssjúklinga frá Sýsluspítalanum í Pasadena yfir á Rannsóknar- og læknastofu Rifes í San Diego. Nefndin innihélt lækna og sjúkdómafræðinga, sem kanna áttu ástand sjúklinganna, væru þeir enn á lífi, eftir 90 daga. Eftir 3 mánuði í meðferð hjá Rife, komst nefndin að þeirri niðurstöðu að 14 af sjúklingunum hefðu hlotið fullan bata. Meðferðin var þá fínstillt og þeir tveir sem eftir voru hlutu fullan bata innan fjögurra vikna frá þeim tíma. Þann 20. nóvember (1934), heiðruðu 44 af virtustu læknum Bandaríkjanna, og þær stofnanir sem þeir störfuðu hjá, Royal Rife, með stórveislu sem bar heitið: "Endalok Allra Sjúkdóma". Var hún haldin á landareign Dr. Milbank Johnsons í Pasadena.

rifecenter

En þegar árið 1939 gekk í garð, þá höfðu nánast allir þessara háttvirtu lækna og vísindamanna neitað að hafa nokkurn tíman hitt Rife. Þessi algjöri viðsnúningur var afleiðing þrýstings sem lyfjafyrirtækin beittu þá. ‘Þrýstingur’ er þó e.t.v. helst til huggulegt orð til að lýsa framkomu lyfjafyrirtækjanna. Kvöldið áður en kynna átti niðurstöður rannsókna Rifes á krabbameini og meðferð við því, á blaðamannafundi, var Dr. Milbank Johnson, fyrrum forseta AMA í Suður-Kaliforníu, byrlað banvænt eitur. Þetta sama kvöld "týndust" öll skjöl hans um rannsóknir Rifes. Þar að auki voru rannsóknarstofur Rifes brenndar til kaldra kola, í kjölfar (misheppnaðrar) tilraunar Morris Fishbeins til að kaupa réttinn á tæki Rifes, lyfjaiðnaðinum til handa. Dr. Nemes, sem hafði "endurtekið" einhverjar af tilraunum Rifes, lést svo í dularfullum eldsvoða, sem jafnframt lagði í eyði öll rannsóknarskjöl hans. Svipaður eldsvoði eyðilagði Burnett Rannsóknarstofuna, þar sem starfað var hörðum höndum við að leggja mat á verk Rifes. Royal Raymond Rife lést svo sjálfur er hann hlaut of stóran skammt af valíumi (til hliðar við áfengi sem fyrir var í blóði hans), á Grossmont Sjúkrahúsinu, árið 1971.

Seint á 6. áratugnum voru jafnvel sjálfstæðir læknar og rannsóknarstofur (þar á meðal Presbyterian Sjúkrahúsið í New York) – óafvitandi um verk Rifes, farnir að koma fram með sínar eigin sannanir þess efnis að krabbamein væri smitandi vírussjúkdómur, haldandi því fram að krabbamein samanstæði ekki af staðbundnu æxli, einu og sér. Þeir lýstu krabbameini sem alhæfum sjúkdómi sem stafaði af einhverskonar lífverum eða lífformi í blóðinu. Það gæti verið að öll okkar hefðum þennan vírus og að hann væri að öllu jöfnu ekki valdur að myndun æxlis. Undantekningar væru þá of mikið eiturefni í blóðinu, óheilbrigt líferni eða lágt súrefnismagn í blóðinu. (Auðvitað eru alltaf til undantekningar, t.a.m. Linda McCartney, sem dó af krabbameini þrátt fyrir afskaplega heilbrigt líferni). En við trúum því þó að afeitrun geti hjálpað til, og að heilbrigður lífstíll sé mjög gagnlegur við að fjarlægja þá vírusa sem breytt geti frumum okkar í krabbameinsfrumur.

Meira um Royal R. Rife

Til Baka

 

 

 

Nauðsynlegt er að taka það sérstaklega fram að sá texti sem birtist á þessu vefsvæði "www.rife.is" um stórkostlega sögu Royal Ramond Rifa og ótrúlega hæfileika hans og víðsýni, einnig um Rife Resonator lofa á engann hátt lækningu eða heilsubót að neinu tagi og eru settar upp eingöngu sem upplýsingar og reynslusögur.
Samkvæmt nýlegum lögum FDA (Food And Drug Administradion í Bandríkjunum) þá eru lyf það eina sem læknar sjúkdóma.
Ef þú ert veik/ur þá leitar þú til læknis.

Hafa samband: allthitt@allthitt.is

VILLT þú Heilsufrelsi á Íslandi?
Skráning á póstlista!