RIFE RESONATOR

Þáttur Kjartans Gunnars Kjartanssonar

Royal Raymond Rife – Tímatal

Hann uppgötvaði áhrifaríka lækningu við krabbameini ásamt fjölmörgum öðrum sjúkdómum.
Var hann stórkostlegasta hetja 20. aldarinnar ?
Lestu áfram og sjáðu hvað gerðist.

 1888
Fæðist í bænum Elkhorn, Nebraska.

1913
Kvænist. Flytur til San Diego. Á sér fjölmörg áhugamál, m.a. skotvopnarannsóknir, kappakstursbílasmíð, sjóntækjafræði og smásjárrannsóknir.

1915-1918
Smíðar 2700 hestafla bátavél fyrir keppnisbát. Báturinn setur hraðamet sem ekki er slegið í rúm 60 ár.
Þjónar í sjóhernum. Sendur til að rannsaka erlendar rannsóknarstofur af bandarísku ríkisstjórninni.

1920
Byrjar að rannsaka möguleika á notkun rafmagns til að meðhöndla sjúkdóma. Timken, eigandi Timken Roller Bearing Co., og Bridges, eigandi Bridges Carriage Co., borga fyrir byggingu nýrrar rannsóknarstofu og fjármagna rannsóknir hans. Byrjar rannsóknir á berklum.

1922
Byrjar rannsóknir á krabbameini.

1929
Verðbréfamarkaðurinn hrynur. Tveimur vikum síðar, 3. nóvember 1929, birtir San Diego Union grein þess efnis að Rife hafi smíðað smásjá sem hægt er að nota til að skoða lifandi vírusa. (Í dag er þetta kallað lífskin.)

1931
Tveir menn ganga í lið með Rife: Dr. Arthur I. Kendall, framkvæmdastjóri Læknisfræðilegra Rannsókna við Northwestern Háskólann, og Dr. Milbank Johnson, læknir á Pasadena Spítalanum. Dr. Alvin G. Frood, forseti Sambands Bandarískra Sjúkdómafræðinga verður einnig virkur þáttakandi í rannsóknum Rifes.

1931 (22. nóvember)
L.A. Times kunngjörir uppgötvun "síanlegra taugaveikistafgerla" sem, er þeir voru ljóslitaðir (með ljósbrotstækni) breyttust aftur yfir á ósíanlegt form. Fylgst var með þessu í gegnum öfluga nýja smásjá sem hönnuð var af Royal Raymond Rife, og gerir notendum fært að fylgjast nákvæmlega með lifandi bakteríum og vírusum.

1932 (3. og 4. maí)
Kendall talar frammi fyrir Samtökum Bandarískra Lækna í John Hopkins Háskólanum, og skýrir þar frá þeim árangri sem náðst hafði með aðferðum Rifes. Dr. Thomas Rivers, veiru- og bakteríufræðingur og forstjóri Rockefeller Stofnunarinnar – aðalbakhjarls læknisfræðilegra rannsókna – og Dr. Hans Zinsser, kalla Kendall lygara frammi fyrir mannmergðinni sem komið hafði saman.

1932 (5. til 7. júlí)
Dr. Edward C. Rosenow, sem starfaði í Tilraunadeild Bakteríurannsókna Mayo Læknastofunnar, verður vitni að árangri rannsókna Rifes, og gerist stuðningsaðili.

1932 (30. nóvember)
Rife einangrar síanlega vírusinn sem veldur þekjuvefskrabbameini. "Horn ljósbrotsins er 12 3/16°; lengdin er 1/15 míkron; breiddin 1/20 míkron, litur efnafræðilegs ljósbrots er rauðfjólublár." Plemomorphism einnig komið á fót.

1932
Við lok ársins getur Rife drepið taugaveikibakteríuna, mænusóttarvírusinn, herpesvírusinn, krabbameinsvírusinn og aðra vírusa í ræktuðum dýrum líkt og tilraunadýrum.

1933
Rife lýkur við "alheimssmásjánna". Þrjátíuogeittþúsundföld (31.000) upplausn og sextíuþúsundföld (60.000) mögnum.

1933 (júlí)
Dr. Karl Meyer, forstjóri læknisfræðilegra rannsókna hjá UCSF, gengur í teymi Rifes.

1934 (Sumar)
Fyrstu læknastofunni sem styðst við rannóknir Rifes komið á fót. Sérstakri læknisfræðilegri rannsóknarnefnd komið á fót og er henni stjórnað af Milbank Johnson, sem hefur jafnframt yfirumsjón með rannsóknunum. Nefndarmeðlimir eru: Whalen Morrison, yfirskurðlækni á Santa Fe. George C. Dock, M.D., George C. Fischer, M.D., lækni á Barnaspítalanum í New York, Arthur I. Kendall, Dr. Zite, M.D., prófessor í meinafræði við Chicago Háskólann. Rufus B. Von Klein Schmidt, forseta USC.

Aðrir sem voru viðstaddir:

Dr. James Couche, San Diego.

Dr. Carl Meyer, Ph.D., Hopper Stofnuninni, San Francisco.

Dr. Kopps, Efnaskiptalæknisstofunni í La Jolla.

Læknastofunni er komið upp í La Jolla. Sextán einstaklingar með banvæna sjúkdóma eru meðhöndlaðir. Fjórtán þeirra eru orðnir heilbrigðir eftir 3 mánuði og hinir tveir eftir 6 mánuði.

1935
Rife smíðar minni smásjá sem unnt er að fjöldaframleiða.

1935 (maí – júní)
Dr. O. Cameron Gruner frá Montreal afritar krabbameins- Pleomorphism þeirra Rifes og Kendalls.

1935 (júní)
Fjögur tryggingafyrirtæki hafa áhuga á að fjármagna rannsóknir Rifes með því skilyrði að Alþjóðakrabbameinsstofnunin gefi samþykki sitt. Dr. Mildred Schram, ritari stofnunarinnar, setur ákveðin skilyrði (sem ekkert tengjast vinnu Rifes) fyrir því að stofnunin veiti samþykki sitt. Rife hefur ekki tíma fyrir nein hliðarspor og því verður ekkert af hugsanlegri fjármögnun.

1935 (september)
Ný útgáfa af "Rife Tíðnigeislanum" er fullunnin.

1935 (október)
Dr. Walker og Dr. Meyer hjá Hooper læknastofunni nota Rife-smásjánna og "tíðnigeisla" til að endurtaka lækningar Rifes.

1935 (nóvember)
Dr. Johnson opnar aðra læknastofu til að prófa frekar þær lækningaraðferðir sem notaðar voru á fyrstu læknastofunni.

1936 (2. júní)
William Donner, forseti Alþjóðlegu krabbameinsrannsóknarstofnunarinnar hafnar beiðni Johnsons um rannsóknarstyrk.

1937 (júlí)
Rife flytur inn í nýju rannsóknarstofuna sína á Alcott St. í Point Loma. Hún var byggð af styrktaraðila hans, Henry Timkin.

1937 (september-maí)
Þriðja læknastofa Dr. Johnsons gefur sömu raun og hinar tvær. Gífurlegur þrýstingur liggur á Rife að gera lækningarmeðferðir sínar heyrum kunnar. En hann og ráðgjafar hans gera sér grein fyrir þeim mótbárum sem þeir mega búast við frá "bókstafstrúarmönnum læknaheimsins" og ákveða því að safna eins miklum, óhrekjanlegum og tölfræðilegum upplýsingum og hægt er.

1938
Rife Beam Co. er stofnað. Fjórtan vélar eru smíðaðar. Tvær fara til Englands, ein fer til Dr. Richards Hamer á geðsjúkrahúsinu í Paradise Valley, ein til Dr. Arthur Yale, tvær til lækna í Arizona og átta til lækna í Suður-Kaliforníu. Dr. Hamer læknar 82 ára gamlan einstakling frá Chicago af banvænu krabbameini. Í gegnum þennan einstakling kynnist Morris Fishbein, formaður AMA (American Medical Association) í Chicago, verkum Rifes. Fishbein heimsækir Rife og falast eftir hlut í fyrirtækinu. Rife og samstarfsaðilar hans neita honum um það.

1938
J.C. Burnett rannsóknarstofan í New Jersey er brennd til kaldra kola. Kona Burnetts er meðlimur í Timken fjölskyldunni. Rannsóknarstofan er brennd á meðan Burnett og kona hans eru í heimsókn hjá Rife.

AMA stefnir Rife fyrir sviksamlega lækninga ástundun.

1938 (12. júní)
Fyrsti dagur Rife réttarhaldanna. Á meðan á vitnisburði hans stendur er Rife svo taugaveiklaður að hann getur ekki hætt að skjálfa.. Honum er ráðlagt af lækni á staðnum að fá sér sopa til að róa sig aðeins. Þar með byrjar alkóhólismi Rifes.

Á meðan á réttarhöldunum stendur og eftir þau heimsækir AMA alla lækna sem nokkurt samband höfðu við Rife. Þeir sem ekki hættu notkun tækjanna misstu læknaleyfi sitt. Dr. Hamer og Dr. Gruner skila sínum undir eins, en Dr. Couche ögrar AMA og missir læknaleyfið sitt. Margir aðrir læknar og samstarfsmenn Rifes snúa við honum baki, þar á meðal Dr. Drood, Dr. Rosenow og Dr. Meyer. Rife vinnur engu að síður málið. AMA borgar Kendall í Baltimore "um það bil" 200.000 $. Hann flytur til Mexíkó.

1940
Kendall deyr.

1944
Milbank Johnson deyr undir grunsamlegum kringumstæðum. Tveir alríkiseftirlitsmenn komast að þeirri niðurstöðu að líklegast hafi honum verið byrlað eitur. Að því er sagt er átti hann að kynna rannsóknir Rifes fyrir AMA næsta dag. Allar skýrslur í eigu Rifes sem voru í vörslu akademísku nefndarinnar eru eyðilagðar. Nefndin er leyst upp.

1946
Drykkjarvandamál Rifes neyðir hann til að selja rannsóknarstofuna sína, einn hlut í einu. Hann fer í áfengismeðferð.

1948
Dr. Virginia Livingston-Wheeler og Dr. Elanor Alexander-Jackson, örverulíffræðingar í Fíladelfíu sanna að krabbameinsvírusinn sé í raun pleomorphic bacterium.

1949
Dr. Virginia Livingston er sett yfir New Rutgers Prebyterian rannsóknarstofuna í Newark, NJ.

1949 (6. júní)
Morris Fishbein er útskúfað úr AMA á ráðstefnu í Atlantic city. Ástæðan: Margra ára auglýsing á sviksamlegri starfsemi og fjársvik.

1950
Rife er sleppt úr meðferð og snýr aftur til vinnu. Hann stofnar til samstarfs við John Crane, verkfræðing og vísindamann. Crane "enduruppgötvar" tíðnigeislann og ræður til vinnu Verne Thomson, rafeindatæknisérfræðing hjá lögreglunni í San Diego. Honum er ætlað að hjálpa til við að smíða nýjar vélar.

Dr. Irene Corey Diller hjá Krabbameinsrannsóknarstofnuninni í Fíladelfíu, einangrar sveppaþætti úr krabbameinsvexti. Óafvitandi hefur hún endurtekið verk Rifes og Gruners. Hún setur upp málþing í New York til að tilkynna uppgötvun sína, en það er þaggað niður af Dr. Cornelius P. Rhoads, yfirmanni Memorial Sloan-Kettering Krabbameinsmiðstövarinnar.

Dr. James Hillman hjá RCA Rannsóknarstofunum í Prceton, NJ, staðfestir síðar Livingston-Wheeler-Gruner-Rife pleomorphism.

1953
Dr. Diller birtir uppgötvun sína: Rannsóknir á sveppkenndum formum sem finna má í illkynja æxlum. Dr. Livingston-Wheeler kynnir sínar eigin uppgötvanir á 6. alþjóðlega örveruþinginu í Róm, þann 10. September: The Washington Post segir m.a.: "Læknisfræðiakademían í New York virðir tilkynninguna samstundis að vettugi". Dr. Rhoads of Memorial Sloan-Kettering Krabbameinsstofnunin stöðvar alla fjárveitingu til Rutgers-Presbyterian Sjúkrahússrannsóknarstofunnar. Rannsóknarstofunni er lokað og Dr. Livingston-Wheeler neyðist til að hætta frekari rannsóknum.

1954
Dr. Livingston-Wheeler flytur til San Diego og hefur störf á læknastofu. Krabbameinsmeðferðar- og greiningarnefnd Alþjóðarannsóknarráðsins "leggur mat" á uppgötvanir Rifes og kemst að þeirri niðurstöðu að "þær gætu ekki gengið". (Vinsamlegast athugið: Aldrei nokkurn tíman, allt fram til dagsins í dag, hefur nokkur "hefðbundin" krabbameinsstofnun í rauninni prófað aðferðir Rifes).

Rife, vegna ítrekaðra krafna Cranes, fær höfundarrétt á lýsingu sinni á því, hvernig lækna skuli krabbamein.

1958 (janúar)
Hópur lækna í Salt Lake City byrjar að nota tíðnitæki Rifes. Í maí neyðir læknisráð Salt Lake City þá til að hætta notkun þess.

Heilbrigðisráðuneyti Kaliforníu heldur yfirheyrslu. Tíðnitækjum hefur verið úthlutað til Palo Alto greiningarrannsóknarstofunnar, Kalbfeld-rannsóknarstofunnar, læknisfræðirannsóknarstofunnar hjá UCLA og San Diego tilraunarrannsóknarstofunnar. Allar fyrrnefndar rannsóknarstofur prófuðu tækin og lýstu því yfir að þau væru örugg til notkunar. Þrátt fyrir það lýsa AMA og Heilbrigðisráðuneyti Kaliforníu því yfir að tækið sé óöruggt. Tækið er bannað og tekið af almennum markað.

1958 (14. júlí)
Dr. Virginia Livingston er fyrsti ræðumaður á fyrstu Alþjóðlegu Ráðstefnunni um Örverufræði og Hvítblæði í Antwerpen, Belgíu. Hún kemst að því að the pleomorphism of cancer er almennt viðurkennt í Evrópu, en nánast hunsað í Bandaríkjunum.

1958 (nóvember)
Eftir að hafa prófað tækni Rifes í sex mánuði, kynnir Dr. Robert Stafford frá Dayton, Ohio, rannsóknir sínar fyrir [the Executive Committee of the General Practice Section of the Montgomery County Medical Society of the American Medical Association]. Nefndin er hrifin og ákveður að setja upp rannsóknarnefnd sem samanstendur af áhrifaríkustu læknum Dayton, Ohio.

1959
Dr. Clara Fonti frá Mílanó, Ítalíu, sýkir sjálfa sig af krabbameinsvaldandi bakteríum. Æxli myndast, sem seinna var fjarlægt með skurðaðgerð. Með þessu sannar hún pleomorphism sem þátt í myndun krabbameins í mönnum.

Dr. Livingston-Wheeler hittir nágranna sinn, Royal R. Rife.

1959-1960
Dr. Livingston og Rife vinna saman. Hún fær Stofnun Krabbameinsrannsókna í Fíladelfíu til að sjá Rife fyrir músum. Skoðun þeirra á pleomorphism er nánast sú sama. Eini munurinn er sá, að Dr. Livingston ætlar sér að hanna sermisbóluefni til að vinna á krabbameininu, á meðan Rife er þess fullviss að vírusarnir sundrist undir tíðnigeislanum.

1960
John Crane skrifar og fær höfundarrétt á bæklingi sem útskýrir hvernig nota eigi tíðnitækin. Dr. Stafford frá Dayton, stingur upp á því að hann sjálfur framleiði og dreifi út tækjunum í Bandaríkjunum. Crane ákveður að fá einkaleyfi á tækinu til að koma í veg fyrir að læknar breyti henni, og fái þar með misvísandi niðurstöður. Níutíu tæki eru búin til og þeim útdeilt "til rannsókna og staðfestingar á notorized samningum".

1960
AMA og FDA láta til skara skríða. Brotist er inn á skrifstofu Cranes. 40.000 $ virði af búnaði er gerður upptækur, ásamt verkfræðilegum gögnum, rannsóknarskrám, annars konar sýrslum, myndum af veggjum, persónulegum bréfum, reikningum, upptökum og rafmagnsvarahlutum. Allt saman án leitarheimildar. Læknar sem hafa tíðnitæki í fórum sínum eru heimsóttir og þeir neyddir til að láta þau af hendi. Óbreyttum borgurum sem hafið höfðu tilraunir með tækin er hótað. Ein kona var lögð inn á sjúkrahús eftir áhlaup AMA.

Rife og Crane eru handteknir, en sleppt gegn tryggingu. Rife, nærri 73 ára, höndlar ekki frekari misnotkun og fer í felur til Mexíkó.

1961 (vor)
Réttarhöldin yfir John Crane standa yfir í 24 daga. Ekki má nota þau gögn og efni sem gerð voru upptæk, Crane til varnar. Ekki má kynna vitnisburð Rifes. Formaður kviðdómsins er læknir innan AMA; Kviðdómurinn er kannaður til að ganga úr skugga um það að meðlimir hans hafi enga þekkingu á sviði læknavísindi eða rafmagnsfræði. Engar læknaskýrslur frá fjórða og fimmta áratugnum eru leyfðar né nokkrar læknaskýrslur frá öðrum læknum. Ekki má sýna fram á áhrif tíðnitækisins, hvað þá koma með það inn í réttarsalinn. Eina læknisfræðilega skoðunin sem fylki Kaliforníu býður kemur frá Dr. Paul Shae, sem hafði verið gefið tíðnitæki 2 mánuðum fyrir réttarhöldin. Hann viðurkennir að hafa aldrei reynt tækið eða gert nokkrar tilraunir til að leggja mat á það. Hann skoðaði það lítillega og ákvað að það hefði engan læknandi kraft og notaði það því aldrei í rannsóknarskyni.

Crane er fundinn sekur og dæmdur í 10 ára fangelsisvist. Seinna meir, eftir áfrýjun, dregur hæstiréttur Kaliforníufylkis tvö ákæruatriði af þremur til baka vegna þess að ekki var hægt að sanna að "glæpirnir hafi verið framdir með glæpsamlegan ásetning í huga". Crane ver þremur árum og einum mánuði í fangelsi. Eftir að Crane er færður á bak við lás og slá er Dr. Stafford frá Dayton, neyddur til að láta af höndum tíðnitækið sitt og hann nauðbeygður til að hætta læknastörfum. Unnin voru spellvirki á tíðnitæki læknis frá Salt Lake City og hann ofsóttur af læknayfirvöldum, upp að því marki að hann fremur sjálfsmorð.

1962
Dr. Livingston fær hjartaáfall en nær bata.

Kefauver umbótin á matar- og lyfjalagasetningunni frá 1938 gefur FDA réttinn til að ákveða hvort lyf sé áhrifaríkt eður ei. Öryggi er ekki lengur efst á forgangslistanum. Lyfjameðferð og öryggi er hér með tekið úr höndum læknisins og sjúklinga hans.

1964
John Crane er sleppt úr fangelsi. Hann byrjar að berjast enn á ný.

1965
Crane sækir um sæti í Heilsuráði Almennings í Kaliforníu, til þess að stuðla að því að tíðnitækið verði leyft og viðurkennt í læknisfræðilegum tilgangi. Umsóknin er send inn undir nafni Rife Smásjárstofnunarinnar, John Crane, eigandi. Heilbrigðisráðuneytið svarar því að Crane verði fyrst að sýna fram á heilsusamleg áhrif tækisins. Dr. Charles W. Bunner, kírópraktor, samþykkir að skoða tækið til að sanna notagildi þess. Heilbrigðisráðuneytið kemur í heimsókn, bannar honum að nota tækið og afhendir honum dómskvaðningu þess efnis að það skuli eyðilagt.

Dr. Les Drown, kírópraktor, útvegar yfirlýsingu. Kemur þá í heimsókn til hans fulltrúi frá Bandarísku Krabbameinsstofnuninni og neyðir hann til að láta tíðnitækið sitt af hendi, eða fara í fangelsi. (Aldrei var fengið einkaleyfi á uppgötvunum Rifes varðandi krabbamein). Rife snýr aftur frá Mexíkó.

1966
Dr. Livingston og gamli samstarfsmaðurinn hennar, Dr. Elanor Alexander Jackson, koma á framfæri ritgerð á Krabbameinssemínar í Arizona. Þegar Dr. Alexander snýr aftur til Columbia Háskólans uppgötvar hún að bundinn hefur verið endi á hana og vinnu hennar.

1968
Dr. Livingston og maðurinn hennar opna læknastofu í San Diego.

1968-1983
Þau meðhöndla yfir 10.000 krabbameinssjúklinga með serminu sem hún hannaði, auk mataræðis sem hannað var með það í huga að byggja upp ónæmiskerfið. Meðferðin skilaði 80 prósent árangri (og í kjölfarið hefur Heilbrigðisráðuneyti Kaliforníu reynt að loka læknastofunni hennar. Það hefur jafnframt bannað notkun sermisins).

1969 (4. mars)
Rife afsalar John F. Crane eignaréttinum á smásjánni sinni. Það er Crane sem varðveitir það sem eftir er af vinnu Rifes.

1969 (5.-8. nóvember)
Dr. Livingston, Dr. Alexander, Dr. Diller og Dr. Florence Seibert frá Veterans Administration Rannsóknarstofunni í Bay Pines, Flórída, koma á framfærði ritgerð: Örverur sem Tengdar Eru Illkynja Æxlum.

1970 (30. október)
Ritgerðin er gefin út.

1970
Royal R. Rife deyr. Hann hefur verið lagður inn á sjúkrahús vegna áfengiseitrunar. Skýrslur sýna að honum hafi verið gefinn of stór skammtur af valíumi. Þegar valíumi er blandað saman við áfengi getur blandan reynst banvæn, eins og raun ber vitni. Hann var 84 ára.

1971 (23. desember)
Richard Nixon, forseti Bandaríkjanna, skrifar undir 1,6 milljarða dollara löggjöf til að hefja "stríðið gegn krabbameini".

1972
Dr. Livingston gefur út sína fyrstu bók: Krabbamein: Bylting (Cancer: A Breakthrough). Hún fordæmir NCI fyrir misnotkun þeirra á fjármunum og "notkun fólks í tilraunaskyni fyrir ‘uppskurðar-, geisla-, og lyfjameðferðir’, sem einungis ráðast af hagsmunum örfárra aðila.

1973
Hæstiréttur kveður á um það að FDA "geti ákveðið, án yfirheyrslu, hvaða sönnunargögn séu leyfð".

1980
AMA eru fundin sek, af Áfrýjunardómstól Bandaríkjana, um samsæri þess efnis að halda aftur af allri samkeppni. Nýjar aðferðir við heilsugæslu hafa verið hindraðar og, í sumum tilfellum, þeim útrýmt.

1984
Dr. Livingston gefur út Sigurinn á Krabbameini (The Conquest of Cancer).

1985
Sloan-Kettering Krabbameinsstofnunin finnur Rife-Livingstone-o.s.frv. lífformið (vírus) í blóði krabbameinssjúklinga. Þeir komast að þeirri niðurstöðu að þetta stafi af utanaðkomandi mengun og grafa skýrsluna.

1985
Þegar hér er komið við sögu eyðir Alþjóðakrabbameinsstofnunin 1,2 milljörðum dollara á ári í krabbamein. Þarna eru ekki taldir með þeir fjármunir sem Bandaríska Krabbameinssamfélagið aflar.

1988
Rife Rannsóknarstofurnar eru stofnaðar til að blása nýju lífi í verk Rifes.

1990
Gert er ráð fyrir því, að 50 milljarðar dollara hafi nú verið eytt í "stríðið gegn krabbameini". Tuttugu prósent af þeim fjármunum er varið í raunverulegar rannsóknir.

Dr. Virginia Livingston-Wheeler deyr.

1996
John Crane deyr, algjörlega snauður, í San Diego Sýslu.

1998 (maí)
Ekkert hefur breyst er þetta er ritað. Rife Tíðnimeðferðirnar eru enn ólöglegar nema í tilraunaskyni. Að því er sagt er lækna þær alnæmi en tíðnirnar eru þó algjörlega bannaðar (jafnvel til rannsóknar) í Bandaríkjunum einum. Tilvist smásjánna sem Rife hannaði er enn afneitað af hefðbundnum læknavísindum, líkt og pleomorphism vírusa og baktería. Enn er spyrnt af fullu afli gegn óhefðbundnum krabbameinsmeðferðum.

Bara á síðasta ári (1997) var ráðist inn á, og lagðar í eyði, skrifstofur Bandarískrar Líffræði (American Biologics) í San Diego, en læknastofa þeirra í Tijuana notar óhefðbundnar lækningaraðferðir.

Hversu lengi getur þetta gengið svona?

Hvers vegna er það, að eini hópurinn sem ekki vill að þú öðlist heilsu, eru læknasamtökin? Þeir vilja meðhöndla þig, ekki lækna eða koma í veg fyrir sjúkdóma. Hættulegasti staðurinn til að vera á gæti verið með læknunum inni á spítala. Axlaðu persónulega ábyrgð og finndu þína eigin lækningarmeðferð. Sumt fólk er alltaf sjúkt, en annað aldrei. Af hverju er það?

 Til Baka

 

 

 

Nauðsynlegt er að taka það sérstaklega fram að sá texti sem birtist á þessu vefsvæði "www.rife.is" um stórkostlega sögu Royal Ramond Rifa og ótrúlega hæfileika hans og víðsýni, einnig um Rife Resonator lofa á engann hátt lækningu eða heilsubót að neinu tagi og eru settar upp eingöngu sem upplýsingar og reynslusögur.
Samkvæmt nýlegum lögum FDA (Food And Drug Administradion í Bandríkjunum) þá eru lyf það eina sem læknar sjúkdóma.
Ef þú ert veik/ur þá leitar þú til læknis.

Hafa samband: allthitt@allthitt.is

VILLT þú Heilsufrelsi á Íslandi?
Skráning á póstlista!